Kaldadalsleið, er forn þjóðleið frá Þingvöllum, og upp í Borgarfjörð, og þaðan norður í land. Kaldidalur var ruddur fyrstur fjallvega á Íslandi árið 1830, að tilstuðlan Bjarna Thorarensen skálds og amtmanns. Vegurinn er með hæstu fjallvegum á landinu, liggur hæst í 730m / 2.400 ft hæð, vestan við Langjökul. Hann er einungis fær á sumrin, og það sæmilega búnum bílum. Vegurinn liggur mest um gróðurlausa mela, frá Þjóðgarðinum á Þingvöllum, og niður að Húsafelli í Borgarfirði, þeim fallega gróna stað. Frá Húsafelli er steinsnar í Hraunfossa, sem falla í Hvítá. Fyrir ferðamenn, sem hafa áhuga að sjá sem flestar hliðar landsins, er þetta frábær dagsferð, hringferð frá Reykjavík, á Þingvelli, síðan Kaldadal niður í Borgarfjörð, og síðan áfram að Reykholti, Hvanneyri og Borgarnesi, áður en haldið áfram til höfuðborgarinnar.








Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Vesturland 11/08/2025 – A7R IV, RX1R II : FE 1.8/135mm GM, FE 1.2/50mm GM, FE 1.8/20mm G, 2.0/35mm Z



