Vestur á Vestfirði

Því miður. Eða sem betur fer, eru Vestfirðir sá landshluti sem fæstir ferðamenn sækja heim. Samkvæmt könnun sem var gerð 2023, heimsóttu einungis 13% erlendra ferðamanna Vestfirði, þetta einstaka, strjálbýla en stóra landsvæði á norðvesturhorninu. Það voru Þjóðverjar, sem voru áberandi flestir þótt þeir séu bara einn fimmti af fjölda Bandaríkjamanna sem sækja Ísland heim. Hótel á Vestfjörðum eru 15, og gistiheimili rúmlega 40, meðan Airbnb eru íbúðir eru um 170. Það sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða, er friðsæld, fegurð fjarðanna, fallega fossa, og einstök sjávarþorp, þar sem tíminn gengur hægar en á suðvesturhorninu. Vestfirðir eru um 9% af flatarmáli landsins, eða 8.842 km  stórir.

Á Vestfjörðum búa nú 7.200 manns, þar af um helmingur í Ísafjarðarbæ. Hér er smá sýnishorn, frá Vestfjörðum, sem er bæði gaman og gefandi að heimsækja, allan ársins hring. 

Dynjandi í Arnarfirði
Það sem eftir stendur af hvalstöðinni á Sólbakka í Önundarfirði, byggð Það sem eftir stendur af hvalstöðinni á Sólbakka í Önundarfirði, byggð 1889, og brann 1901. Þá fluttu norsku eigendurnir sig um set, í Mjóafjörð, austur á fjörðum
Fé á beit á Barðaströnd
Bíldudalur í Arnarfirði, einn veðurbesti staður á Íslandi

Höfnin á Patreksfirði, vestasta bæ í heimsálfunni91 1 Bíldudalur í Arnarfirði, einn veðurbesti staður á Íslandi
Rekaviður í Steingrímsfirði, Grímsey á Húnaflóa, lengst til hægri
Sundlaug í Mjóafirði
Látrabjarg í septemberbirtu, vestasti hluti Evrópu
Eyðibýli í Skötufirði, Ísafjarðardjúpi
Á Dynjandisheiði, Arnarfjörður í bakgrunni

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Vestfirðir 26/09/2025 – A7R IV, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 1.4/85mm GM, 2.0/35mm Z (SWC 38mm)