Vígsla Andvara

Vígsla Andvara

Á morgun, þriðjudaginn 13. september, verður Andvari ÞH 1438, nýjasti rafbátur Norðursiglingar, formlega vígður á Húsavík. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, verður viðstödd athöfnina og mun flytja ávarp.
andvariEinnig verður fyrsta skóflustunga tekin að Sjóböðunum á Húsavíkurhöfða.
Þér er hér með formlega boðið að taka þátt í þessum viðburðarríka degi með okkur og vonumst við til að þú sjáir þér fært að mæta.
Dagskrá:
kl. 16.00
Fyrsta skóflustunga að Sjóböðunum á Húsavíkurhöfða.
kl. 16.30
Vígsla Andvara við Húsavíkurhöfn.
Ávörp flytja:
• Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar.
• Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
• Kristján Þór Magnússon, hafnar- og sveitarstjóri Norðurþings.
Að vígslu lokinni verður boðið upp á léttar veitingar á Hvalbaki.

Stórt skref í átt að rafvæðingu flotans
Andvari er annar báturinn í flota Norðursiglingar sem hefur verið rafvæddur og hefur fyrirtækið því stigið stórt skref í átt að fullri rafvæðingu flotans.
Síðustu vikur hefur Andvari siglt með farþega í hvalaskoðun á Skjálfanda og óhætt að segja að upplifun þeirra hafi verið jákvæð enda er þessi einstaklega umhverfisvæni bátur algjörlega hljóðlaus sem gerir hvalaskoðun og náttúruupplifun við Skjálfanda enn ríkari og betri fyrir gesti.
Ljósmynd efst : Hafþór Hreiðarsson.