Hostel 14. maí
Tónleikarnir eru hluti af stuttri tónleikaferð um landið
Þjóðlagaskotna poppsveitin Ylja heldur tónleika í Gym & Tonic salnum á Kex Hostel næstkomandi laugardag, 14. maí. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 21:30.
Ylja hefur sent frá sér tvær breiðskífur sem báðar hafa verið lofaðar í hvívetna. Hljómsveitin var stofnuð af söngkonunum og gáítarleikurunum Bjarteyju Sveinsdóttur og Gígju Skjaldardóttur árið 2008. Þær hafa alla tíð haft mikinn áhuga á samhljómi radda og kassagítarspili og í tíð Ylju hafa þær ávallt reynt að víkka tónsvið sitt og breyta.
Hljómsveitin hefur gengið í gegnum smávægilegar mannabreytingar á sinni lífstíð og hefur tónsviðið sömuleiðis þróast.
Í dag skipa Ylju ásamt þeim Bjarteyju og Gígju þau Örn Eldjárn gítarleikari, Ingibjörg Erla Turchi sem spilar á bassa og mun trymbillinn knái Þorvaldur Þorvaldsson setjast á trommustólinn þetta kvöld.
Nánari upplýsingar má finna hér:
https://www.yljamusic.com/
Aðgangseyrir er enginn.