Guðjón Ketilsson – Málverk

Verið velkomin á opnun föstudaginn 26. febrúar kl 17:00 – 19:00.
(English below)
Málverk nefnist önnur einkasýning Guðjóns Ketilssonar í Hverfisgallerí.
Titillinn tengist þeim lestri er báðar myndraðir sýningarinnar opna fyrir; Í annarri myndröðinni koma fyrir málningarpallettur Guðjóns, diskar og skálar sem hann hefur blandað liti á og síðan geymt á vinnustofu sinni, frá miðjum 10. áratugnum til ársloka 2015 og þá pússað niður með sandpappír. Við pússunina sjást málningarlögin og lag fyrir lag má lesa litanotkun listamannsins við gerð verka á lengstum hluta ferils síns, líkt og lesa má jarðsögu úr jarðlögum lands.

Í hinni myndröð sýningarinnar koma fyrir verk þar sem listamaðurinn vinnur með nítján af eigin málverkum, sem unnin voru á 9. áratugnum, auk texta sem lýsir því sem fyrir augu ber í hverju verki. Í raun þyrfti að nota hér fortíð sagnarinnar og segja; lýsir því sem fyrir augu bar, því viðkomandi málverk hafa nú verið skorin niður í þunnar ræmur og hefur listamaðurinn límt þær þétt saman, svo ekki er lengur hægt að sjá myndina á upprunalega málverkinu. Eftir stendur málverk án myndar og texti er stendur fyrir þá mynd sem eitt sinn var.

Um verk sín á sýningunni segir Guðjón:  „Sjálfum finnst mér skapast ákveðið andríki með góðri vinnuaðstöðu og ég er alltaf að reyna að búa mér til pláss á lítilli vinnustofu, endurskipuleggja. Endurskipulagningin verður mér æ meiri hvati fyrir gerð nýrra verka og í henni felst ákveðin endurskilgreining. Í einum af skápunum voru þessar málverkarúllur, verk sem ég gerði á árunum 1983-1989 og voru í raun alltaf fyrir augunum á mér. Allan þennan tíma fannst mér ég ekki þurfa að breiða úr rúllunum því utaná hverja þeirra hafði ég skrifað lýsingu á hverri mynd og veit undireins af þeirri lýsingu hvaða verk þetta er afþví ég þekki það. Ég vissi að ég ætti aldrei eftir að sýna þessi málverk aftur. Ég tók þau fram, skar þau í ræmur og límdi ræmurnar saman. Mig langaði að sjá hvernig þverskurðuriunn væri, því ég hef verið að vinna nokkuð með bókina sem objekt. Þverskurðurinn lítur út eins og blaðsíður í bók. Á þeim tíma sem ég var að gera þetta varð ég vitni að sjónlýsingu Þórunnar Hjartardóttur á málverkum á Kjarvalsstöðum fyrir blinda og sjóndapra. Og það bara small eitthvað saman, að málverkin, sem ég hafði skorið niður í ræmur, fengju svona textalýsingu og að tungumálið, textinn, yrði að vera stór hluti af sjálfu verkinu.“

Guðjón Ketilsson (f. 1956) býr og starfar í Reykjavík. Hann lauk myndlistarnámi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1978 og framhaldsnámi frá Nova Scotia College of Art & Design í Kanada árið 1980. Hann hefur haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga í Evrópu, Bandaríkjunum, Kína og Ástralíu. Verk Guðjóns eru að finna í öllum listasöfnum á Íslandi, svo og í söfnum erlendis og einkasöfnum. Hann hefur unnið að myndlist á fjölda alþjóðlegra vinnustofa og hefur verið valinn til þátttöku í alþjóðlegum samkeppnum. Guðjón hlaut Menningarverðlaun DV árið 2000 og Verðlaun Listasafns Einars Jónssonar 2001.
www.internet.is/gudjonket
Sýningin stendur út  9. apríl
Þið finnið okkur á:

FACEBOOK

INSTAGRAM
//
Welcome to a vernissage Friday February 26th at 5 pm – 7 pm.
Painting is the title of artist Guðjón Ketilsson´s second solo exhibition at Hverfisgallerí.
The title relates to his two series of works on display; in one of them, Ketilsson works with his own artist palettes, numerous dishes and bowls, which he used for blending his colours on from the mid-1990s through 2015. They have accumulated in his studio over the years and now he has polished all of them down with sandpaper. The polishing reveals various colours, layer by layer the artist´s colour range throughout most of his career can be read like geological strata in nature.
In another series of works in the exhibition, nineteen of Ketilsson´s paintings from the 1980s become material for his new works, alongside texts (in Icelandic and English), which thoroughly describe each image on the canvas. He has cut each of these paintings into thin strips and glued them together. The original paintings will, in effect, never been seen again. Remaining are paintings showing no image and a text that represents the image that once was.

On these works, Ketilsson comments: “For me, good facilities for working induce inspiration and I am always trying to create more space in my small studio, in order to restructure. Spatial restructuring has greater impetus for my creation of new works and results in a re-definition. These rolls of paintings from 1983-1989 had been lurking at my studio and I always had them at hindsight. But, I did not feel it was important to spread them since on the rolls I had written a description of what could be seen on each painting and from it I knew exactly which work it was. I knew I would never show them again as paintings. I unrolled them, cut them into strips and glued the strips together. I wanted to see the cross section because I have been working quite a bit with the book as a physical object. The cross section looks like pages in a book. At the time I was doing this I attended an audio description for the blind and visually impaired, of paintings at an art museum, by audio describer and artist Þórunn Hjartardóttir. And things just came together. I decided that the paintings I had cut into strips, should receive such an audio description, language would become a major part of the work as it sort of describes itself.”
Guðjón Ketilsson (b. 1956) lives in Reykjavík, Iceland.

He studied Fine Art at the Academy of Icelandic Art and at Nova Scotia College of Art and Design, Canada. He has had over thirty solo exhibitions and has participated in numerous group exhibitions in Europe, USA, China and Australia. Ketilsson´s works can be found in all art museums in Iceland, as well as in museums and private collections abroad. He has been invited for a number of international art workshops and has been selected for participation in international public art competitions. Ketilsson received the DV Cultural Prize in 2000 and the Prize of the Einar Jónsson Art Museum in 2001, both in Iceland.

www.internet.is/gudjonket
Runs through April 9th
We are also on:

FACEBOOK

INSTAGRAM

OPNUNARTÍMAR / OPENING HOURS

13 – 17 þriðjudag til föstudags
14 – 17 laugardaga og sunnudaga og samkvæmt samkomulagi.

13 pm – 5:00 pm Tuesday to Friday
2 pm – 5 pm Saturday to Sunday and by appointment.

Hverfisgallerí
Hverfisgata 4
101 Reykjavík
Iceland