Hún er frábær sýning Kristínar Gunnlaugsdóttur (f : Akureyri 1963) Ósagt / Unspoken á Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir. Þarna er farið yfir farsælan feril listakonunnar, í skipulagðri ringulreið. Kristín vinnur með fjölbreytt efni, blaðgull, olíumálverk, útsaum, skissur og eggtempera, sem endurspeglar þá hugmynd að listin sé ekki aðeins tjáning heldur samtal við efnið, formið og áhorfandann, eins og sýningarstjórinn Markús Þór Andrésson segir í sýningarskrá. Þetta er nefnilega ekki sýning þar sem bara er horft um öxl, þarna birtist framtíðin líka. Bravó, Kristín.








Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 23/09/2025 – A7C R : FE 1.8/20mm G
;



