Steina (Listasafn Íslands)

Hún Steina (Steinunn Bjarnadóttir Vasulka, 1940) er stór listamaður, enda eru verk hennar nú álitin lykilþáttur í sköpun og sögu vídeólistar. Hún er svo stór, að tvö af höfuðlistasöfnum landsins, Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur, taka sig saman, og það í fyrsta sinn, með sýningunni Steina : Tímaflakk. Í meira en hálfa öld hefur Steina skapað vídeóverk með lífsförunaut sínum, hinum tékknesk-íslenska Woody Vasulka (1937-2019). Hér er farið yfir feril listakonununnar, frá því hún byrjaði tilraunir með þennan nýja miðil, í New York árið 1969, fjórum árum eftir að þau flytja til Ameríku. Frá New York, flytja þau Woody til New Mexico, árið 1980, og halda ótrauð áfram að skapa sinn heim, sýna list. Sýningarstjóri á sýningu Listasafns Íslands, er Pari Stave, og á Listasafni Reykjavíkur, Markús Þór Andrésson. 

Tímaflakk, Listasafni Íslands
Tímaflakk, Listasafni Íslands
Tímaflakk, Listasafni Íslands
Tímaflakk, Listasafni Íslands
Tímaflakk, Listasafni Íslands
Tímaflakk, Listasafni Íslands
Tímaflakk, Listasafni Íslands
Tímaflakk, Listasafni Íslands

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík 25/10/2025 – A7C R : FE 1.8/20mm G