Desemberbirtan / Myndasyrpa II

Þrátt fyrir að dagarnir séu stuttir í Reykjavík í desember, þá eru þeir einstaklega fallegir þegar sólar nýtur við. Þegar það er skýað er dimmt, eins og það birti ekki. Bara sýnishorn af birtu. Undanfarnir dagar hafa verið einstaklega fallegir, sólin rétt skríður upp, og skuggar og ljós, búa til magnaða stemmingu. Hér eru sýnishorn af vetrarfegurð Reykjavíkur

Hallgrímskirkja, frá Skólavörðustíg
Morgunbirta fellur á Ráðhús Reykjavíkur við Reykjavíkurtjörn
Lækjargata
Bessastaðir, bústaður Forseta Íslands, baðaður í morgunsól, Skarðsheiði í bakgrunni,
Við Reykjavíkurtjörn, horft til hægri inn Lækjargötu
Álft á Reykjavíkurtjörn
Fuglar fljúga upp í sólina við Reykjavíkurtjörn

Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 06/12/2025 – GFX 100 II : GF 1.7/55mm