Kleifarvatn á góðum degi

Fallegur dagur, við Kleifarvatn á Reykjanesi, sem er 8 km2 að stærð og 97 metra djúpt, sjöunda dýpsta vatns landsins, og númer tuttugu að stærð. Það sem gerir Kleifarvatn einstakt, er nálægðin, kyrrðin við höfuðborgarsvæðið, þar sem tæplega átta af hverjum tíu íbúum lýðveldisins halda heimili. Undir Kleifarvatni eru stór öfl, vatnið hefur minnkað um 20% síðan um aldamót, en undir niðri eru miklir kraftar, enda er vatnið í mikilli nálægð við eldsumbrotin vestar á Reykjanesskaganum. Icelandic Times / Land & Saga var ekki eitt á ferð við vatnið. Mikil umferð, í flug hálku var við vatnið. Allir óku til fyrirmyndar, nær allir ferðamenn, nær og fjær. Enda einstaklega góður dagur við Kleifarvatn, sem er í aðeins í 45 mín fjarlægð frá Reykjavík. 

Horft í suður yfir Kleifarvatn
Gullbringa og Geitahöfði í bakgrunni
Stapatindar vestan við  Kleifarvatn
Ferðalangur fá Nice horfir til norðurs, yfir Kleifarvatn
Mynd frá Seltúni
Litir í Seltúni
Ferðalangar í Seltúni
Hversvæðið við Seltún, sunnan við Kleifarvatn
Einn, tveir og þrír við Kleifarvatn
ís á  Kleifarvatni

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Kleifarvatn : 04/03/2026 :GFX 100 II, GFX 100RF – 4.0/35mm, 1.7/55mm