,,Íslendingar hafa lagt tvennt til byggingalistasögunnar, annars vegar torfbæinn og hins vegar bárujárnsklædda timburhúsið. Þegar sveiserstíllinn svokallaði barst til landsins frá Norðurlöndunum um 1890 þá byrjuðu íslenskir forsmiðir að klæða vegleg timburhús með bárujárni. Þegar Norðurlandabúar sjá þessi hús í dag þá taka þeir bakföll af undrun því þeir eiga ekki að venjast því að sjá hús í sveiserstílnum klædd bárujárni, en það er einmitt mikið af slíkum húsum í miðborginni”, segir Magnús Skúlason formaður húsfriðunarnefndar 2013- 2016. Báruklædd hús, eru hluti af af okkar sögu, þau finnast um allt land frá Aðalvík til Þórshafnar. Icelandic Times / Land & Saga fór samt ekki langt, þræddi Vesturbæinn, Þingholtin og Kvosina í höfuðborginni, og fann fegurðina í… bárujárninu sem endist, í hundrað ár. Svo allflest húsin, eru komin með annan umgang, enda flest byggð milli 1880 og 1915. Langa löngu fyrir okkar tíma.












Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 28/02/2026 : GFX100 II – 1.7/5mm



