Orkuboltinn Ísland

Orkunotkun Íslendinga er einstök, þar sem 80% af okkar orkunotkun er endurnýjanleg, frá jarðvarma og vatnsafli. Fimmtungur kemur frá jarðefnaeldsneyti sem knýr áfram skip, flugvélar og bifreiðar.  Í örfáum köldum byggðarlögum sem hafa ekki aðgang að heitu vatni, eða reka loðuverksmiðjur á fullum afköstum í örfáar vikur í vorbyrjun, er notað jarðefnaeldsneyti . Það má segja að í heimunum fyrir utan Ísland, séu hlutföllin akkúrat öfug. Jarðefnaeldsneyti var á síðasta ári 76,5% af orkunotkun jarðarbúa, 19,7% var endurnýjanleg orka, meðan kjarnorka var 3,7%. Ísland framleiðir mikið af orku, 20TWh, sem er þó aðeins 1/1.500 heildarnotkun í heiminum, en setur okkur í fyrsta sæti í raforkuframleiðslu á mann, sæti á undan frændum vorum Norðmönnum. Árnar okkar, sumar beislaðar gefa okkur ómælda orku, sem er seld til stóriðju, í gagnaver, og til lýsa upp hýbýlin í skammdeginu. Hér koma nokkrar myndir af ám, víðs vegar um Ísland, ár sem gefa okkur bæði fegurð, gleði, og hreina orku. Já Ísland, Íslendingar eru… sannkallaðir orkuboltar. 

Tuning, sem rennur í Þjórsá, en þar verður til yfir 60% af vikjuði vatnsafli
Jökulá á Breiðamerkursandi, er stysta á landsins, nokkur hundruð metrar
Ölfusá, á Suðurlandi, vatnsmesta á landsins
Álftir á Lagarfljóti, á Austurlandi
Ferðamaður virðir fyrir sér Dynjanda í Arnarfirði, vestur á fjörður
Hítárá á Snæfellsnesi, ein besta veiðiá landsins, Eldborg í bakgrunni
Hvítárvatn, upptök Hvítár, sem síðan sameinast Sogi, og til verður Ölfusá. Í Hvítá er Gullfoss, einn mest sóti ferðamannastaður landsins

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Ísland : 03/03/2026 : RX1R II, A7R IV – 2.035mmZ, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM