Ólíkar, eru þær, tvær sýningar sem nú eru í gangi í Listasafni Reykjavíkur / Hafnarhúsi í Tryggvagötu. Blómstrandi fegurð, er heiti sýningar ljósmyndarans og myndlistarkonunnar, Katrínar Elvarsdóttur (f:1964). Í ljósmyndaverkunum hennar mætast grípandi fegurð og hugleiðingar um upprunann. Hún veltir fyrir sér hvað það þýðir að tilheyra, að festa rætur – vera aðfluttur og samt hluti af heild. Katrín fylgir plöntunum eftir með myndavélinni, tilgangurinn er ekki að kyrrsetja þær í tíma, heldur til að skrásetja og færa yfir í annað form. Þetta eru fjórar seríur, þar sem fjallað er meira og minna um inngrip okkar í náttúruna. Hin sýningin er Hraunmyndanir, s.ap Arkitekta, framlag Íslands til 19. alþjóðlegu arkitektasýningar Feneyjatvíæringsins árið 2025. Sýningin segir sögu framtíðarsamfélags sem hefur lært að temja hraunflæði, nýta sér það og þannig breytt staðbundinni ógn í tækifæri til sköpunar. Sagan gerist árið 2150 þegar Íslendingar hafa beislað hraunrennsli líkt og við gerðum við gufuaflið um miðja síðustu öld. Fullkomið inngrip í náttúruna.
Áhugaverðar sýningar, í hjarta Reykjavíkur.










Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 02/03/2026 : GFX100RF – 4.0/35mm



