Sólin sest

Hún, það er að segja sólin, er rétt komin upp þegar hún ákveður að setjast aftur nú um vetrarsólstöður. Frá árinu 1968, eða í 57 ár, hefur klukkan á Íslandi verið á GMT, allt árið. Við fáum með því lengur birtu seinnipartinn. Nú þegar fer að birta aftur, þá eru það ekki stór skref, 22 desember, er bara sekúndu lengri, bjartari en deginum á undan, en tíu dögum síðar, síðasta dag ársins, hefur dagurinn lengst um 13 mínútur í Reykjavík, og 18 mínútur á Akureyri. Á níutíu dögum, til 20.mars hefur dagurinn lengst um 500 mínútur, rétt rúma átta klukkustundir í höfuðborginni. Og hér koma einmitt myndir, teknar í dag í höfuðborg lýðveldisins, þegar tók að rökkva.

Reykjavíkurtjörn
Reykjavíkurtjörn við sólsetur
Hendi í Hljómskálagarðinum
Ráðhúsið og Hallgrímskirkja
Reykjavíkurtjörn
Hornið á Pósthússtræti, Vallarstræti
Lækjartorg, Jólakötturinn, og Stjórnarráðið
Lækjartorg, Jólakötturinn, og Stjórnarráðið

Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 20/12/2025 – GFX 100 II : GF 1.7/55mm

Myndatextar :