Fyrir sjö mánuðum, heimsóttu Icelandic Times / Land & Saga Ártúnshöfða, þar sem nýtt 4.200 íbúða hverfi, Borgarhöfði, er að verða til. Þetta verðandi grænasta hverfi borgarinnar er nú komið langt á meðgöngu, mikið að gerast. Það er verið að brjóta niður eldri iðnaðarbyggingar og nýtt húsnæði að rísa í staðinn. Ártúnshöfði er hæð ofan og austan við Elliðaár, og þar hefur verið iðnaðarhverfi, bílasölur og bifreiðaverkstæði í hart nær sjötíu ár. Nú er breyting, enda er svæðið einstaklega vel staðsett í austurhluta Reykjavíkur, og miðsvæðis gagnvart samgöngum. Stutt suður í Kópavog/Garðabæ/Hafnarfjörð, eða að Hringvegi 1, til að fara umhverfis landið þegar vel viðrar. Í næsta nágrenni verður aðalskiptistöð Borgarlínu, almenningssamgöngukerfi sem er nú í burðarliðnum. Það er spennandi að sjá nýtt hverfi verða til og fá á sig mynd, jafnvel ljósmynd.










Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 09/02/2026 – GFX 100 RF – 4.0/35mm



