4 Flottar sýningar

Það er gefandi og gaman að koma í Listasafn Íslands á Fríkirkjuvegi núna. Það eru fjórar ólíkar sýningar sem fylla húsið. Staðarform sýning á akitektúrteikningum, tveggja listamanna, sem skilja, skynja og lýsa byggingarlist, þeirra Harðar Ágústssonar (1922-2005) og Donalds Judd (1928-1994) í sýningarstjórn Gavin Morrison. Snertifletir er samsýning um samhljóm myndlistar á Íslandi frá árinu 1970. Það eru sautján listamenn sem endurspegla um fjörutíu ára kafla í íslenskri myndlist, í sýningarstjórn Pari Stave og Gavin Morrison og er sýningin tileinkuð minningu Péturs Arasonar (1944–2023). Framsýns listaverkasafnara og hvatamanns að samræðum og samvinnu listafólks. Sjávarblámi  er sýning Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, þar sem þau með myndlist sinni skapa sjónarhorn, og lýsa flóknum tengslum manna og hvala, auk annarra lífvera. Sýngarstjóri er Æsa Sigurjónsdóttir.  Að lokum er það Grandalaus viðbrögð, sýning pólsku listakonunnar Agnieszku Polska, í sýningarstjórn Pari Stave. Í þessu tveimur vídeóverkum er sjónum beint að fallvaltleika tilverunnar, þegar samband manns og náttúru er að breytast hratt. Fjórar flottar sýningar. 

Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg
Staðarform
Staðarform 
Staðarform 
Snertifletir 
Snertifletir
Snertifletir
Snertifletir
Sjávarblámi
Sjávarblámi
Sjávarblámi

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 18/02/2026 : GFX 100RF – 4.0/35mm