Maður gleymir því alltaf hve stutt er í annan heim Þingvalla, frá Reykjavík. Það tekur innan við klukkutíma í bíl frá miðborg höfuðborgarinnar, austur í Þjóðgarðinn á Þingvöllum. Fyrsta þjóðgarð landsins, stofnaður árið 1928. Þingvellir er mikilvægasti staður í íslenskri sögu, þarna var Alþingi Íslendinga stofnað árið 930. Þarna þúsund og fjórtán árum síðar, þann 17. júní 1944 lýstu við yfir sjálfstæði, eftir að hafa verið undir Noregi og síðan Danmörku frá árinu 1262, eða í tæp átta hundruð ár. Þjóðgarðurinn sem stendur við norðurenda Þingvallavatns, stærsta náttúrulega stöðuvatni á Íslandi. Hér koma vetrarstemmingar, margar í svarthvítu, frá þessum einstaka stað, rétt norðaustan við Reykjavík.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Þingvellir: 25/02/2026 : RX1R II, A7C R, A7R IV – 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, FE 2.0/28mm



