Bergmál til Póllands

Pólverjar eru einstaklega gott fólk, setja sterkan svip á íslenskt samfélag í dag. Þeir eru þriðjungur af öllum innflytjendum sem búa hér í þessu 400 þúsund manna samfélagi. Innflytjendur, eru 75 þúsund, þar af eru Pólverjar eru 25 þúsund. Í Hafnarborg í Hafnarfirði eru nú tvær sýningar í gangi, önnur, Heiðvirðir einstaklingar, þar rýna listamennirnir Weronika Balcerak og Lukas Bury í góð og langvarandi samskipti Póllands og Íslands. Því frá miðri síðustu öld streymdu frá Póllandi, Prince Póló, súkkulaðikexið sem er þjóðarréttur Íslendinga, traktorar og kol. Til Íslands. Í vöruskiptum seldum við þeim lopa og síld í staðinn. Hin sýningin er ramm íslensk, Bergmál, þar sem Ragna Fróða býður okkur í heimsókn. Heimsókn í framandi heim forma, mynstra og áferða. Hér erum við komin heim, í eitthvað svo fallegt og íslenskt, og samt svo alþjóðlegt… jafnvel pakistanst, perúskt eða pólskt. 

Bergmál
 Heiðvirðir einstaklingar
Bergmál
Heiðvirðir einstaklingar
 Heiðvirðir einstaklingar
 Heiðvirðir einstaklingar
 Heiðvirðir einstaklingar
Heiðvirðir einstaklingar
Hafnarborg Hafnarfirði

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Hafnarfjörður : 14/03/2026 : GFX 100 II, GFX100RF – GF 4.0/35mm, GF 1.7/55mm

2762 Hafnarborg Hafnarfirði

18