Tilheyra nýju samfélagi 

Tilheyra nýju samfélagi 
Hann kemur upphaflega frá Mexíkó, Hugo Llanes (f:1990) listamaðurinn sem er 54. listamaðurinn að sýna í D-sal, Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhús. En þarna, er (ungum) listamönnum boðið, sem hafa mótandi áhrif, eru skapandi, til að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni. Sýningin Bonita

fjallar Hugo um það margslungna ferli að aðlagast nýrri menningu sem innflytjandi. Hann nýtir sér undirstöður íslenskrar og mexíkóskrar menningar – tungumál, matarhefðir, listasögu og tónlist – til að kanna hvernig þessar hefðir blandast, hvaða hliðstæður koma í ljós og hvað það þýðir að tilheyra. Fyrir sýninguna skapaði Hugo hliðarsjálfið Bonitu sem hann staðsetur á milli menningarheima, þar sem túlkun og merking eru í stöðugri þróun. Þetta er forvitnileg sýning, þar sem þessir menningarheimar, mætast á miðri leið, sem er ekki svo langt frá Bermúda þríhyrningnum. Sýningarstjóri er Björk Hrafnsdóttir. 

Sýning Hugo Llanes, Bonita
Sýning Hugo Llanes, Bonita
Sýning Hugo Llanes, Bonita
Sýning Hugo Llanes, Bonita

Sýning Hugo Llanes, Bonita

Sýning Hugo Llanes, Bonita
Sýning Hugo Llanes, Bonita
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson