Fjölbreytt og spennandi dagskrá í vetrarfríinu hjá Listasafni Reykjavíkur

Listasafn Reykjavíkur býður fjölskyldum upp á fjölbreytta dagskrá í vetrarfríinu sem hefst næsta fimmtudag. Leiðsagnir um yfirstandandi sýningar, spennandi vinnusmiðjur og skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna. Þátttaka er ókeypis, skráning og nánari upplýsingar í síma 411 6400 eða á [email protected] Fimmtudagur 25. febrúar Hafnarhús kl. 11: Fjölskylduleiðsögn í um sýninguna Tilurð Errós 1955-1964. Hafnarhús kl. 13: Vinnustofa fyrir fjölskyldur í samstarfi við Biophilia menntaverkefnið. Vinnustofan er ætlum börnum á aldrinum 10-12 ára. Föstudagur 26. febrúar Hafnarhús kl. 11: Fjölskylduleiðsögn á pólsku um sýningu Moniku Grzymala: Hugboð. Leiðsögnin er í höndum listakonunnar Wiola Ujazdowska.

Hafnarhús kl. 13: Vinnustofa fyrir fjölskyldur í samstarfi við Biophilia menntaverkefnið. Vinnustofan er ætlum börnum á aldrinum 10-12 ára. Ásmundarsafn kl. 13: Fjölskylduleiðsögn um sýninguna Geimþrá og fræðsla um himingeiminn í stjörnuverinu. Frímann Kjerúlf Björnsson, myndlistarmaður og eðlisfræðingur, fjallar um fyrirbæri geimsins. Kjarvalsstaðir kl. 13-16: Örnámskeið fyrir fjölskyldur í tengslum við sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Hugur og heimur. Leiðbeinandi: Arnar Ásgeirsson, myndlistarmaður. Laugardagur 27. febrúar Kjarvalsstaðir kl. 13-16: Örnámskeið fyrir fjölskyldur í tengslum við sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Hugur og heimur. Leiðbeinandi: Arnar Ásgeirsson, myndlistarmaður. Sunnudagur 28. febrúar Kjarvalsstaðir kl. 15: Sýningarstjóraspjall: Ólöf K. Sigurðardóttir fjallar um gerð sýningarinnar Jóhannes S. Kjarval: Hugur og heimur.