Einskismannsland

Einskismannsland: Sunnudagsleiðsögn
29. júlí kl. 15.00 á Kjarvalsstöðum

 

Jón Stefánsson, Tindafjallajökull, 1940, olía á masónít

Sérfræðingar Listasafns Reykjavíkur leiða gesti um sögulegan hluta sýningarinnar Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? Þar er að finna málverk eftir 15 valinkunna listamenn af víðernum landsins auk ljósmynda, skissa og kvikmynda frá hálendinu.

Á sýningunni er sjónum beint að verkum listamanna sem endurspegla tengsl Íslendinga við víðerni landsins og breytilegt verðmætamat gagnvart náttúrunni.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.