Sjóminjasafnið í Reykjavík, á Grandagarði við Reykjavíkurhöfn, var formlega opnað árið 2004. Það er eitt fimm safna sem heyra undir Borgarsögusafn Reykjavíkur. Á safninu er boðið upp á grunnsýninguna, Fiskur og fólk – sjósókn í 150 ár. Gagnvirk sýning sem virkar. Glöggt er gests augað, er sýning í safninu, sem fjallar um komu franska herlæknisins Paul Gaimard til Íslands árið 1835. Með honum í för var einvala lið fræði- og listamanna, sem rannsakaði Ísland, bæði náttúru og menningu árin 1835 og 1836. Þetta er umfangsmesti vísindaleiðangur sem nokkru sinni hefur komið til Íslands. Þegar leiðangurinn kemur til Reykjavíkur búa 650 manns í þorpinu. Eftir að hafa farið um allt Ísland, hvernig ætli þeim hafi litist á fólkið sem hér bjó; jú sem göfuga villimenn… heldur sóðalegra, og ekki vel að sér í mannasiðum, en jafnframt gestrisna, heiðarlega og vel upplýsta. Sýningin er samstarfsverkefni Borgarsögusafns Reykjavíkur og Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Fróðleg sýning fyrir alla, enda skreppur við 190 ár til baka á ljóslifandi hátt.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjanes 14/08/2025 – A7C R : FE 1.4/24mm



