Á Suðurlandi II

Þegar vel viðrar, jafnvel í svartasta skammdeginu tekur landið vel á móti manni; eins og Icelandic Times / Land & Saga komst að á ferð sinni um Suðurland. Hér koma þrjár myndasyrpur þar sem birtan bregður á leik. Hér er myndasería númer tvö, ferðamannastaðir, brjóstahaldarar, byggingar og annað sem varð á vegi Icelandic Times / Land & Saga nú í skammdeginu. Það sem kom mest á óvart hve margir ferðamenn voru á ferðinni, hvort sem þeir voru á bílaleigubíl eða að ferðast með rútum. Á bílastæðinu í Reynisfjöru voru til dæmis á fimmta tug bíla og þrjár stórar rútur þegar við áttum leið þarna um, rétt uppúr hádegi. Á degi þar sem dagsbirtan nær bara fjórum klukkustundum, plús.

Hestur sprettur úr spori við Brekkuhlíð undir Eyjafjöllum. Ferðamenn hafa hengt á girðinguna, hundruð brjóstahaldara við Hringveg 1, rétt við Holtsós. Þetta var félagslegt, verkefni sem byrjaði hjá mæðgum, á næsta bæ árið 2017, og hefur síðan heldur betur undið upp á sig. Tvisvar hefur Vegagerðin fjarlægt brjóstarhaldarana, segir þá búa til slysahættu. Jafnharðan eru nýir komnir á girðinguna. Í dag eru þeir þarna í hundraðatali, til að lífga upp á… náttúruna.
Ferðafólk við Víkurkirkju, Vík í Mýrdal, kirkjan var vígð 1934
Ferðamenn horfa agndofa á brimið, lemja ströndina, einn Reynisdraganna í bakgrunni
Í Reynisfjöru, Dyrhólaey, syðsti oddi landsins í bakgrunni
Bærinn Loftsalir við Dyrhólaós, rétt vestan við Dyrhólaey

Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Suðurland : 14/12/2025 – GFX 100 II : GF 1.7/55mm