Hugurinn leiddi hann út á öldurnar

Hugurinn leiddi hann út á öldurnar

Hugurinn leiddi hann út á öldurnar er yfirskrift hádegisfyrirlestrar sem Davíð Logi Sigurðsson verður með í Sjóminjasafninu föstudaginn 11. nóvember í tilefni af útgáfu bókar hans Ljósin á Dettifossi. land-og-saga-hadegisfyrirlestur_david_logi

Í bókinni segir höfundur frá afa sínum Davíð Júlíusi Gíslasyni sem stóð í stafni í hinstu siglingu Dettifoss og um aldamótakynslóð sjómanna sem hann tilheyrði.

Þá er fjallað um örlög Dettifossar en einnig um mennina sem stunduðu sjóinn á fyrstu áratugum aldarinnar og upplifðu breytingarnar á skipaflota landsins á þeim tíma sem Eimskip verður til og fer að kaupa Fossana heim. Að endingu mun Davíð Logi ræða tildrög þess að hann réðst í að skrifa þessa sögu.

Davíð Logi er sagnfræðingur og starfaði sem blaðamaður um árabil. Hann vann m.a. Blaðamannaverðlaun ársins 2006 fyrir skrif um alþjóðamál. Um nokkurra ára skeið vann hann hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Líbanon og Palestínu og síðar í höfuðstöðvunum í New York. Davíð Logi starfar nú í utanríkisráðuneytinu.

Allir velkomnir og frítt inn á safnið á meðan leiðsögn stendur.