Einbeittir VIRUS-X vísindamenn (Dr. Björn Þór Aðalsteinsson og Dr. Sólveig Pétursdóttir hjá Matís) kanna mögulega sýnatökustaði í hverum. Myndin er tekin á Reykjum, Ölfusi (Ljósmynd Dr. Arnþór Ævarsson).

Íslenskir sérfræðingar stýra evrópsku rannsóknaverkefni

að andvirði 1100 milljónir króna

Íslenska líftæknifyrirtækið Prokazyme ehf og Matís, ásamt 13 erlendum háskólum, stofnunum og fyrirtækjum hafa hlotið styrk að verðmæti 8 milljónir evra (1100 milljónir íslenskra króna) úr sjóði Horizon 2020, 8. rannsóknaáætlun Evrópu, vegna rannsóknaverkefnisins VIRUS-X. Verkefnið miðar að rannsókn á erfðamengjum og genaafurðum í veirum sem finnast í náttúrulegum vistkerfum með áherslu á vistkerfi hitakærra örvera í íslenskum hverum. Samstarfsaðilarnir munu skipta með sér fjárframlaginu samkvæmt verk- og kostnaðaráætlun og er verkefnið til fjögurra ára.

 

matis2
í VIRUS-X verkefninu er sérstaklega unnið að rannsóknum á ensímum sem eru virk á DNA, m.a með ákvörðun á þrívíddarmyndbyggingu þeirra. Myndin sýnir ensím af því tagi bundið bút af DNA (Mynd Dr. E.Pohl, Durham University).

Dr. Arnþór Ævarsson, framkvæmdastjóri Prokazyme ehf, mun stýra verkefninu en Matís er stærsti einstaki framkvæmdaaðilinn af þeim 15 rannsóknastofnunum víðs vegar í Evrópu sem taka þátt í verkefninu. Aðrir vísindamenn hjá íslensku fyrirtækjunum sem einnig höfðu frumkvæði að VIRUS-X rannsóknaáætluninni, eru m.a. Próf. Guðmundur Óli Hreggviðsson, Dr. Ólafur Héðinn Friðjónsson og samstarfsfólk sem hafa áratuga reynslu af rannsóknum og hagnýtingu á erfðauðlindum í hitakærum örverum í hverum. Þessar rannsóknir hafa einnig beinst að þeim veirum sem sýkja slíkar hitakærar örverur, m.a. í fyrra Evrópuverkefni í 7. rannsóknaáætlun Evrópu (EXGENOMES, FP7), sem stýrt var af Dr. Jakobi Kristjánssyni hjá Prokazyme.

Grundvallarmarkmið VIRUS-X verkefnisins er að einangra erðaefni slíkra veira beint úr náttúrulegum sýnum í þeim tilgangi að raðgreina erfðamengi þeirra, bera kennsl á áhugaverð gen og framleiða viðkomandi genaafurðir, fyrst og fremst ensím, til frekari skoðunar með lífefnafræðilegum aðferðum og ákvörðun á þrívíddarmyndbyggingu. Þannig verði miðað að því að finna og skilgreina ný og betri ensím til hagnýtingar.

Einkum er sóst eftir ensímum sem eru virk á erfðaefni og aðrar kjarnsýrur svo sem DNA og RNA og nýtast sem verkfæri þeirra aðila sem eru að vinna við raðgreiningu og annarri vinnu með erfðaefni á þúsundum rannsóknastofa um allan heim. Í VIRUS-X verkefninu verður einnig leitast við að skoða samspil örvera og veira í náttúrunni og fá betri skilning á viðkomandi vistkerfum svo sem á jarðhitasvæðum á landgrunni Noregs og í hverum á völdum jarðhitasvæðum á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Arnþór Ævarsson hjá Prokazyme ehf í síma 664-7903 og í netfanginu [email protected]