Leiðsögn sýningarstjóra: Jón Proppé
Sunnudag 14. maí kl. 14.00 á Kjarvalsstöðum
Jón Proppé, listheimspekingur og sýningarstjóri sýningarinnar Kyrrð, ræðir við gesti um málaralist Lousiu Matthíasdóttur og feril.
Kyrrð er viðamikil yfirlitssýning á verkum listakonunnar Louisu Matthíasdóttur (1917-2000) þar sem kærkomið tækifæri gefst til að fá yfirsýn yfir feril listakonu sem á einstakan hátt hefur túlkað íslenskt landslag.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.