Lífið í þorpinu

Árbæjarsafn
sunnudagur 29. júlí 2018 13:00-16:00

Lífið í þorpinu

Sunnudaginn 29. júlí býðst gestum að upplifa ferðalag aftur í tímann. Að þessu sinni verður áherslan lögð á lífið í þorpinu og víst er að heimilisfólkið situr ekki auðum höndum. Gestir geta kíkt í prentsmiðjuna og fengið að spreyta sig á því að prenta auk þess að gæða sér á lummum í Hábæ. Í Nýlendu situr spákona og býður gestum og gangandi í stutt spjall. Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér? Starfsfólk klæðist fatnaði sem tíðkaðist á 19. öld og húsfreyjan í Árbæ býður upp á nýbakaðar lummur og á baðstofuloftinu situr kona við tóskap. Í haga er að finna hesta, kindur og lömb og í Dillonshúsi verður heitt á könnunni og heimilislegar veitingar.

Dagskráin hefst kl. 13 en safnið er opið frá 10-17.

Ókeypis aðgangur fyrir börn, eldri borgara, öryrkja og menningarkortshafa.

Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni: Eitt safn á fimm frábærum stöðum.