Monika Grzymala í Hafnarhúsi.

Listamannaspjall – : Hugboð

Laugardaginn 9. apríl kl. 15 í Hafnarhúsi

Monika Grzymala ræðir við sýningarstjórann Ingibjörgu Jónsdóttur um um sýningu sína Hugboð í A-sal. Á sýningunni mætast á einstæðan hátt listrænt inngrip í arkitektúr safnsins og teikning eða umfangsmikið línuspil sem unnið er úr lituðu límbandi. Til verksins nýtir hún marga kílómetra af límbandi sem hún teygir um rýmið og handgerðan áferðarmikinn pappír.

Monika Grzymala fæddist í Póllandi árið 1970 en hefur frá barnsaldri búið í Þýskalandi. Hún nam höggmyndalist og forvörslu en hefur undafarinn áratug vakið athygli fyrir rýmisteikningar sínar. Verk hennar hafa verið sýnd í virtum sýningasölum beggja vegna Atlantshafs.
hafnaarhusid icelandic times _MG_1072
Viðburðurinn hefst kl. 15 og fer fram á ensku. Aðgangseyrir á sýninguna er kr. 1.500, ókeypis er fyrir menningarkortshafa.