Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Á Náttúrugripasafninu eru selir og villt landspendýr Vestfjarða til sýnis og hvítabjörn sem veiddur var fyrir utan Vestfirði. Þar eru yfir 250 fuglar, af 169 tegundum og ýmsum litarafbrigðum. Egg flestra varptegunda og hreiður.

Steinasafn kemur að grunni til frá Steini Emilssyni en einnig frá öðrum söfnurum. Skeljar og surtarbrandur sem sýnir hve gríðarstór tré uxu á Íslandi fyrir langa löngu. Kjálkabein úr líklega stærsta steypireiði sem veiddur hefur verið og er hluti af samstarfssýningu Náttúrugripasafns Bolungarvíkur og Skrúðs í Dýrafirði en beinin stóðu þar í tæp 80 ár. Ný sýning er í gangi tengd hrafninum og hvernig hann hefur tengst okkur í gegn um menningu öldum saman.

Staðsetning: Vitastígur 3, 415 Bolungarvík.
Sími:  456-7507, 456-7005.
[email protected]
www.nabo.is
Opnunartími: 9-17 alla virka daga

Helgaropnun:  júní – miðjan ágúst 10 -17 og eftir samkomulagi.

natturstofa vestjards
Aðalstræti 21
415 Bolungarvík
Sími: 456-7005
Netfang:  [email protected]
Kennitala: 610397-2209