Stundum gleymist hve Ísland er bæði strálbýlt og fátækt af fólki. Nyrsta sýsla landsins er Norður-Þingeyjarsýsla, á norðausturhorninu frá Tjörnesi, í Öxarfjörð, Melrakkasléttu og síðan í Þistilfjörð og Langanes, að Bakkafirði. Sýslan er ansi stór,
5380 km² með bara rétt rúmlega eitt þúsund íbúa. Þarna á norðurhjara búa einungis 0.25% landsmanna. Það þrátt fyrir einstaka náttúru, eins og Dettifoss, í Jökulsá á Fjöllum, kraftmesta foss Evrópu. Ásbyrgi, rétt norðar, er einstakt náttúruundur, en báðir þessir staðir er hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Síðan má ekki gleyma, einstökum perlum eins og Rauðanúp, norður á Melrakkasléttu, Rauðanes í Þistilfirði og Langanes. Á Melrakkasléttu, er fallegasta bæjarstæði landsins á Grjótnesi. Austar á sléttunni er nyrsta þorp landsins Raufarhöfn, eitt af þremur þorpum í sýslunni. Hin þorpin eru Kópasker og Þórshöfn. Norður-Þingeyjarsýsla, er einstaklega sumarfallegt hérað, þegar fuglar og menn syngja í bjartri sumarnóittinni. Veturnir eru bæði dimmir og kaldir, enda er þarna eini staðurinn á meginlandinu, sem heimskaustbaugurinn titlir sér niður, norður á Hraunhafnartanga á Melrakkasléttu.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Norður-Þingeyjarsýsla 30/09/2025 – A7C R, A7R III, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm Z, FE 1.4/24mm GM



