Vaglaskógur, er einn fjölsóttasti skógur landsins, á bökkum Fnjóskár í Fnjóskadal, með frábær tjaldstæði og hátt í 15 kílómetra af merktum gönguleiðum. Sem er sama vegalengd og til Akureyrar um Vaðlaheiðargöng. Til Húsavíkur og Mývatns, í austur eru um 50 kílómetrar. Í Vaglaskógi er skemmtilegt trjásafn með fjölda tegunda. Margir leggja leið sína í Vaglaskóg til að tína sveppi og bláber. Birkið í Vaglaskógi er að jafnaði bæði beinna og hávaxnara en í öðru birkiskóglendi á Íslandi, og þar er að finna hæsta villta birkitré landsins, 15 metra hátt. Nokkrar fágætar lífverur hafa fundið sér búsetu í Vaglaskógi, eins og engjakambjurt, (Melampyrum pratense), en næsti fundarstaður hennar er á Hjaltlandseyjum. Vaglaskógur er paradís fyrir útivistarfólk, allan ársins hring, hvort sem maður hefur áhuga á gróðri, göngu eða bara til að njóta þess besta sem náttúran á Íslandi hefur uppá að bjóða.








Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Suður-Þingeyjarsýsla 01/08/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 2.5/40mm G, 2.0/35mm Z



