Í Gallery Port, er fyrsta einkasýning Búra (f:1982) Shadow Self. Þetta eru fígúratíf málverk, unnin á striga. Verkin eiga rætur sínar í fjölbreyttum heimildum, meðal annars bókmenntum — einkum sjálfsævisögum og endurminningum — sem og rómverskri goðafræði, sögu, heimspeki, sálfræði og listasögu. Þótt klassísk áhrif séu greinileg í verkunum, er unnið frjálslega með viðfangsefnið og samtímaleg nálgun ríkjandi.
Búri hefur starfað sem tattúlistamaður um áratugaskeið og rekið Íslensku Húðflúrstofuna. Hann lærði við Stockholm Academy of Realist Art og var svo um tveggja ára skeið nemandi í einkatímum hjá einum kennara skólans, Samuel Järnegård Fogelvik.
Þetta er skemmtileg, litrík sýning þar sem listamaðurinn leitar í olíu á striga.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 15/01/2026 – GFX 100 II – GL 4.0/23mm



