Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson munu syngja og spila sín uppáhaldslög frá fjölbreyttum ferli þeirra í Hannesarholti þann 1. júní. Ellen stimplaði sig inn í hug og hjörtu íslendinga þegar hún sló í gegn með hljómsveitum á borð við Mannakorn, Tívolí og Ljósin í bænum. Hún hefur starfað sem söngkona allar götur síðan og komið víða við í sinni tónlistarsköpun. Sungið með Borgardætrum og mikið með bróður sínum, Kristjáni Kristjánssyni, einnig þekktum sem KK. Eyþór Gunnarsson er píanóleikari og einn athafnamesti tónlistarmaður íslandssögunnar. Hann stofnaði hljómsveitina Mezzoforte árið 1977 sem sló síðar eftirminnilega í gegn með lagi Eyþórs, Garden Party. Hann hefur komið fram með óteljandi mörgum listamönnum í gegnum tíðina og einnig sinnt upptökustjórn fyrir listamenn á borð við Bubba Morthens, Gunnar Þórðarsson og fleiri.
Tónleikarnir hefjast kl 20 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg.
Aðgangseyrir: 5.900 kr