JT Verk

JT Verk var stofnað með það að markmiði að verða leiðandi fyrirtæki í framkvæmdageiranum.

JT Verk veitir sérhæfða þjónustu á sviði framkvæmdar og verkefnastjórnunar byggingaverkefna. Verkefnastjórar okkar búa yfir verkfræðiþekkingu, auk mikillar reynslu úr framkvæmdageiranum, enda hafa þeir gegnt lykilstöðum í stjórnun og rekstri margra stórra verkefna í gegnum tíðina.

Upprunalega skiptust verkefni JT Verk í þrennt; eigin verkefni, verkefnastjórn og verktöku en allt frá stofnun hefur verkefnastjórnin vegið þyngst og heldur áfram að vega þyngra.

JT Verk hefur í auknum mæli haldið utan um og stýrt byggingarverkefnum frá upphafi til enda, allt frá þarfagreiningu og forhönnun til uppgjörs og skila.

 

RELATED LOCAL SERVICES