Ljósin á Hamborgartrénu tendruð

Ljósin verða tendruð á Hamborgartrénu 2. desember kl. 17.00 við hátíðlega athöfn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög við jólatréð. Viðburðurinn er í boði Landsbankans, Brims, Faxaflóahafna, Hörpu og Regins.
Að athöfn lokinni býðst gestum á Miðbakka að þiggja fiskisúpu í boði Brims í nýju húsi Landsbankans við Reykjastræti 6. Jólasveinar og harmonikkuleikari skemmta gestum og leika jólalög, bæði við athöfnina og í bankanum.

Dagskrá:
-Hafnarstjóri býður gesti velkomna
-Dr. Sverrir Schopka segir frá sögu Hamborgartrésins
-Sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvegneau, tendrar ljósin á Hamborgartrénu
-Jólasveinar sigla inn í gömlu höfnina á Magna og leggjast að Miðbakkanum, spjalla við börnin og leiða gesti svo að fiskisúpukötlunum í nýju húsi Landsbankans í Reykjastræti 6.

Saga Hamborgartrésins
Íslenskir sjómenn sem lögðu að í Hamborg eftir seinna stríð elduðu fiskisúpu handa svöngu fólki meðan verið var að landa úr togurunum þeirra. Sem þakklætisvott hófu hafnaryfirvöld í Hamborg árið 1965 að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar og stendur Hamborgartréð við höfnina yfir hátíðarnar.
Vegna umhverfissjónarmiða er ekki lengur siglt með grenitréð frá Þýskalandi og hafa Faxaflóahafnir þess vegna keypt tré frá Skógræktinni í seinni tíð.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

RELATED LOCAL SERVICES