Viðtal við Önnu Rún Tryggvadóttur
Á sýningunni Margpóla beinir Anna Rún Tryggvadóttir sjónum sínum að ósýnilegum kröftum segulsviðs jarðarinnar og hinu síflakkandi segulnorðri, en þetta grunnafl og hvernig það mótar umhverfi okkar hefur verið henni hugleikið síðastliðin ár. Ljóðræn rannsókn listamannsins leitast við að varpa ljósi á mannmiðjað sjónarhorn á hin jarðlegu öfl sem umvefja okkur.
Hér má horfa á skemmtilegt viðtal við Önnu Rún þar sem hún ræðir sýningu sína sem stendur nú yfir í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg.