+Arkitektar voru stofnaðir árið 2000. Fyrirtækið sinnir verkefnum á öllum sviðum arkitektúrs, hönnunar og skipulags.
Umhverfisleg sjálfbærni og félagsleg ábyrgð eru leiðarljós í öllum okkar verkum. Hvert verkefni er þó einstakt og lýtur einnig eigin lögmálum. Starfsemi og tilgangur þess mætir ávallt einstökum staðháttum og umhverfi. Með þolinmæði, árverkni og úthaldi kvikna hugmyndir og þróast þar til mannvirkið hefur tekið á sig endanlegt form.