Listhúa Ófeigs

Snorri Ásmundsson, Clem Chambers og Zoia Skoropadenko

Frá Listhúsi Ófeigs – Snorri Ásmundsson, Clem Chambers og Zoia Skoropadenko opna sýningu.

Snorri Ásmundsson, Clem Chambers og Zoia Skoropadenko

Listhús Ófeigs

7. febrúar – 4. mars 2026

Undanfarna mánuði hefur Snorri Ásmundsson starfað í Frakklandi í nánu samstarfi við alþjóðlega listamanna tvíeykið Clem Chambers og Zoia Skoropadenko. Í febrúar sameinast þau þrjú í Reykjavík í samsýningu í Listhúsi Ófeigs, þar sem þau sýna ný verk sem þróuð hafa verið á ólíkum stöðum og í fjölbreyttu menningarlegu samhengi.

Samstarf Snorra Ásmundssonar og Zoia Skoropadenko spannar meira en áratug og hófst í Los Angeles 2015. Þau hafa síðan sýnt saman víða um heim, meðal annars í Frakklandi og Japan, þar sem nýleg þátttaka þeirra á Osaka Art Fair hefur styrkt áframhaldandi þvermenningarlegt samtal í verkum þeirra.

Zoia Skoropadenko er úkraínsk, myndlistakona búsett í Mónakó. Verk hennar, sem spanna málverk, skúlptúr, teikningu og hugmyndalist, einkennast af skýrri formgerð, tilfinningalegri dýpt og persónulegu myndmáli.

Clem Chambers er listamaður og menningarfrumkvöðull sem hefur gegnt mikilvægu hlutverki í að styðja samtímalist og listamenn í Frakklandi og víðar. Í eigin verkum rannsakar hann tengsl efnis, frásagnar og þeirra kerfa sem móta menningarleg og efnahagsleg tengsl samtímans.

Saman mynda Snorri Ásmundsson, Clem Chambers og Zoia Skoropadenko áhugaverða samsetningu listamanna sem tengjast í gegnum vináttu, samstarf og sameiginlega skuldbindingu við alþjóðlega samtímalist. Sýningin í Listhúsi Ófeigs býður upp á lifandi samtal milli ólíkra landa og menningarheima og sameinar verk sem mótast hafa af langvarandi alþjóðlegri vinnu.

Bolli Ófeigsson
Gull og silfursmíðameistari
Ófeigur gullsmiðja ehf.
Skólavörðustíg 5
101 Reykjavík
sími: (+354) 551 1161
gsm: (+354) 821 1618
[email protected]
http://ofeigur.is

RELATED LOCAL SERVICES