Þula – Sjóndeildarhringur í óreiðu

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin sýningu Tolla, Sjóndeildarhringur í óreiðu í Þulu
19 Ágúst – 10 September 2023

 Í Sjóndeildarhringur í óreiðu skoðar listamaðurinn þráðinn milli abstrakt og landslagsverka, endurtekin mótíf og hin mörgu blæbrigði náttúrunnar út frá tilfinningu og upplifun.

Tolli þekktur er fyrir einstaka túlkun sína á íslenskri náttúru, með expressjónískum pensilstrokum og litadýrð. Hann útskrifaðist úr nútímalistadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1983 og frá Hochschule der Kunste í Berlín árið 1985, þar sem hann braust fram á sjónarsviðið ásamt félögum sínum í nýja málverkinu. Í gegnum tíðina hefur hann einbeitt sér að íslensku landslagi, sambandinu við plánetuna okkar og nostalgíu eyðibýlanna. Tolli hefur haldið tugi einkasýninga og samsýninga um allt Ísland auk þess að hafa sýnt víða erlendis, meðal annars í Þýskalandi, Danmörku, Mónakó, Bretlandi, Bandaríkjunum og Suður-Kóreu. Verk hans eru í söfnum opinberra safna og fyrirtækja sem og einkasöfnum. Tolli býr og starfar í Reykjavík.

RELATED LOCAL SERVICES