Þúsund sítrustré á Þingvöllum
Það voru kátir krakkar í Landakotsskóla sem tóku þátt í gjörningi listamannsins Michael Joaquin Grey á Þingvöllum í dag. Gjörningurinn sem nefnist Þúsund sítrustré á Þingvöllum fólst í að listamaðurinn fór á Þingvelli og afhenti börnunum mandarínutré sem þau báru til skiptis þar til komið var á ákveðinn stað við Almannagjá. Þar fengu þau svo að ákveða hvort þau vildu gróðursetja tréð eða taka það með sér heim.

Michael Joaquin Grey ásamt börnum úr Landakotsskóla. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir
Eftir nokkra umhugsun og pælingar ákváðu krakkarnir að taka tréð með sér heim. Gjörningurinn hefur ýmsar tilvísanir m.a. í það hvernig hlutirnir geta gjörbreyst og þannig gæti mandarínutré mögulega vaxið á Þingvöllum í framtíðinni. Þarna er vísað í örar breytingar á t.d. veðurfari, fólksflutningum og náttúrulífi í heiminum í dag.
Gjörningurinn er í tengslum við sýninguna Aftur í sandkassann sem opnar í kvöld, föstudaginn 15. janúar kl. 20.