Kolbeinsey, sker norðan Grímseyjar, er nyrsti punktur Íslands. Á Vetrarsólstöðum er dagurinn ansi stuttur í Kolbeinsey, sólin rís þar klukkan 12:35 og sest klukkustund og sextán mínútum síðar, klukkan 13:51. Í Reykjavík er sólarupprás klukkan 11:23, klukkustund og tólf mínútum fyrr en í Kolbeinsey, og þar er dagurinn rétt tæplega fjórar klukkustundir. Þessir dimmu dagar eru, eða geta verið einstaklega fallegir, enda höfum við á Icelandic Times / Land & Saga hlaupið á eftir birtunni, áður en verður dimmt aftur, hér koma sýnishorn frá Reykjavík, þegar nótt verður að degi, í örskamma, en einstaklega fallega stund. Síðan er auðvitað… er bjartara framundan, næstu sex mánuðina.







Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 19/12/2025 – GFX 100 II : GF 1.7/55mm



