Vetur & vor mætast

Það var sérstakt veður á höfuðborgarsvæðinu. Veður eins og það á að vera að þessum árstíma. Sól í smá tíma, síðan hríð. Aftur sól. Icelandic Times / Land & Saga ferðaðist um höfuðborgarsvæði í leit að augnablikum, myndum, skrásetja þessa fegurð þegar vetur og vor mætast, næstumþví. Flestar myndirnar duttu inn svarthvítar, það var stemmingin, liturinn kemur þegar sumarið heilsar ferðamönnum og landsmönnum öllum, eftir örfáar vikur. 

Á Austurvelli, Alþingishúsið í forgrunni 
Gengið í sjósund í Nauthólsvík, lofthitinn 0°C
Bátar í Kópavogshöfn á Kársnesi í Kópavogi
Þennan kong hitti ég út á Granda, enskur, og ekkert skyldur Karli III, tiktok áhrifavaldur, frá Bexill-on-sea
Reykjavíkurhöfn
Gæsir við Gróttu, Seltjarnarnesi
Seltjarnarneshöfn
Farið í sjósund í Nauthólsvík
Horft úr Nauthólsvík í Reykjavík yfir á Kársnesið í Kópavogi
Hjólreiðamaður þverar Sæbraut í Reykjavík

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Höfuðborgarsvæðið : 05/03/2026 : GFX 100 II, GFX 100RF – 4.0/35mm, 1.7/55mm