Góður dagur

Vatnsmýrin og nærliggjandi Reykjavíkurtjörn skörtuðu sínu fegursta í dag. Menn og málleysingar notuðu góða veðrið, til að lyfta sér upp í froststillunni. Það var fjölmennt á Tjörninni, og margir áttu leið um Vatnsmýrina, sem var sveipuð dulúðlegri þoku. Það var eins og að vera eitt augnablik í miðri Hitchcock mynd.
Icelandic Times / Land & Saga var auðvitað á ferðinni að ná stemningunni, á þessum góða degi.

Fólk að skauta, ganga og leika sér á Reykjavíkurtjörn
Við Reykjavíkurtjörn
Vatnsmýrinn í Reykjavík, byggingar Háskóla Íslands, og Norræna húsið í bakgrunni
Fuglar og fólk við Tjörnina
Sólarlag við Reykjavíkurtjörn
Þjóðminjasafnið til vinstri, séð frá Vatnsmýrinni
Á leið í Norræna húsið
Þjóðminjasafnið til vinstri, séð frá Vatnsmýrinni
Það glittir í Hallgrímskirkju í gegnum þokuna í Vatnsmýrinni
Gleði í Vatnsmýrinni
Göngubrúin yfir Hringbraut sem tengir saman Reykjavíkurtjörn og Vatnsmýrina

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 11/01/2026 – GFX 100 II – GF 4.0/23mm