Nátttröll

Reykjavík er lifandi. Þegar Icelandic Times / Land & Saga ákvað að fara niður í miðbæ til að mynda var klukkan orðin margt, komið kvöld. Það var dimmt, en hlýtt miðað við árstíma og ferðamenn og Íslendingar nutu kvöldsins. Líka ljósmyndarinn, sem var að kynnast nýrri myndavél… og ákvað að taka svart hvítt, og leika sér að þeirri sérstöku stemmingu sem gerir okkur að borg… öruggri borg þar sem maður getur hitt mann og annan, gæsir, álftir og aðra furðufugla.

Leikvöllur við Frakkastíg
Laugavegur og Klappastígur
Stemming á Prikinu í Bankastræti
Stjórnarráðið í Lækjargötu, tukthús byggt árið 1771. Skrifstofa Forsætisráðherra. Harpa í bakgrunni
Amerísk stemming í Austurstræti
Reykjavíkurtjörn
Sofandi álftir á Tjörninni

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 29/01/2026 – GFX 100 RF – 4.0/35mm