Elsa Jónsdóttir: Ljáðu eyra

Sýningaropnun
D52 Elsa Jónsdóttir:
Ljáðu eyra
Elsa Jónsdóttir sýnir ný verk á sýningunni Ljáðu eyra í D-sal sem opnar fimmtudaginn 7. ágúst í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.

Skúlptúrar, hljóðmynd og innsetning ljósa í D-sal í Hafnarhúsinu bjóða upp á margþættan lestur. Við fyrstu sýn má greina gamansemi; form, hljóð og dularfull lýsing mynda líflegt samspil. Við nánari athugun, þegar við leyfum okkur að leggja raunverulega við hlustir, vakna róttækari fagurfræðilegar spurningar: Getur mannleg skynjun verið tjáð í gegnum form? Er athygli virkt ferli sköpunar?

Í verkum sínum leggur Elsa áherslu á formfræði tungumálsins, letur, orð og tilvísanir. Hún rannsakar lestur í sínum víðasta skilningi og færir hugrenningar sínar í tákn, form og stafi. Á síðustu árum hefur hún fært sig úr tvívíðum verkum í almanna­rými yfir í þrívíðan skúlptúr. Elsa hefur lengi starfað innan myndlista­tvíeykisins Krot & Krass, en hafa þau unnið ótal veggverk bæði hér heima og erlendis. Elsa hefur tekið þátt í rekstri fjölmargra listamannarýma í Reykjavíkurborg og þar má sérstaklega nefna Fúsk í Gufunesi.

Sýningin stendur til 21. september 2025.

Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Sýningarstjóri: Zsóka Leposa

Fimmtudag 7. ágúst 20.00

RELATED LOCAL SERVICES