Lifandi mannamyndir

Eyrbekkingurinn og myndhöggvarinn Sigurjón Ólafsson (1908-1982) er einn af okkar stóru listamönnum. Í Listasafni hans, á Laugarnesi var að opna sýning á portrettmyndum Sigurjóns, AUGLITI TIL AUGLITIS. Einstök sýning, á hluta þeirra 200 mannamynda sem hann gerði á sínum langa og farsæla ferli. Eins og Birgitta Spur, ekkja listamannsins, segir í sýningarskrá; ,,Sjálfur sagði Sigurjón ekki gera greinarmun á að vinna andlitsmyndir eða óhefðbundin verk, en andlitsmyndirnar höfðu verið hans lífsbjörg. Með þessu móti hefði hann getað unnið fyrir salti í grautinn og jafnframt haldið listrænu ferli sínu til að vinna þau verk sem hugurinn bauð honum.” Sýningin sýnir okkur hve Sigurjón var bæði andríkur, næmur, og fjölhæfur listskapari, á fólk í holdi og blóði, sem er hér lifandi skúlptúr og löngu farið. 

AUGLITI TIL AUGLITIS
AUGLITI TIL AUGLITIS
AUGLITI TIL AUGLITIS

AUGLITI TIL AUGLITIS
AUGLITI TIL AUGLITIS
AUGLITI TIL AUGLITIS
AUGLITI TIL AUGLITIS
AUGLITI TIL AUGLITIS
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi í Reykjavík

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík 15/10/2025 – A7C R : FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/20mm G