Eyrbekkingurinn og myndhöggvarinn Sigurjón Ólafsson (1908-1982) er einn af okkar stóru listamönnum. Í Listasafni hans, á Laugarnesi var að opna sýning á portrettmyndum Sigurjóns, AUGLITI TIL AUGLITIS. Einstök sýning, á hluta þeirra 200 mannamynda sem hann gerði á sínum langa og farsæla ferli. Eins og Birgitta Spur, ekkja listamannsins, segir í sýningarskrá; ,,Sjálfur sagði Sigurjón ekki gera greinarmun á að vinna andlitsmyndir eða óhefðbundin verk, en andlitsmyndirnar höfðu verið hans lífsbjörg. Með þessu móti hefði hann getað unnið fyrir salti í grautinn og jafnframt haldið listrænu ferli sínu til að vinna þau verk sem hugurinn bauð honum.” Sýningin sýnir okkur hve Sigurjón var bæði andríkur, næmur, og fjölhæfur listskapari, á fólk í holdi og blóði, sem er hér lifandi skúlptúr og löngu farið.









Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 15/10/2025 – A7C R : FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/20mm G



