Vatnsmýrin og nærliggjandi Reykjavíkurtjörn skörtuðu sínu fegursta í dag. Menn og málleysingar notuðu góða veðrið, til að lyfta sér upp í froststillunni. Það var fjölmennt á Tjörninni, og margir áttu leið um Vatnsmýrina, sem var sveipuð dulúðlegri þoku. Það var eins og að vera eitt augnablik í miðri Hitchcock mynd.
Icelandic Times / Land & Saga var auðvitað á ferðinni að ná stemningunni, á þessum góða degi.











Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 11/01/2026 – GFX 100 II – GF 4.0/23mm



