Þolimæði & gleði

Hvert á maður að fara á Íslandi þegar dagarnir eru svona stuttir. Spáin er góð en 4-5 tímar af dagsbirtu gera þér ekki fært að flytja þig milli staða, hvað þá landshluta. Og hvar er besta veðrið á Íslandi. Hvergi og eða allsstaðar. Best er að fara inn á vef Veðurstofu Íslands, vedur.is til að plana dag eða tvo. Síðan bara skella sér austur, norður eða vestur.

Hér koma myndir af Íslandi, myndir teknar á þessum árstíma, myndir sem við höldum uppá, enda er þetta góður, en erfiður tími til að njóta og upplifa landið, okkar allra, hvort sem maður er ferðamaður eða heimamaður. 

Bátur á Skjálfandaflóa
Eldborg á Mýrum
Desemberbirta í Klofningi, horft yfir Breiðafjörð
Vitarnir tveir á Akranesi
Skammdegisbirta yfir Reykjavík
Álftafjörður, og bíll á Snæfellsnesi
Ódáðahraun

Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Ísland: 12/12/2025 – A7R IV, A7C R : FE 2.8/100mm GM, FE 2.8/90mm G