Í Nýlistasafninu / The Living Art Museum, í Marshallhúsinu í Örfirisey, stendur nú yfir sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur, Lífsmynstur-öll þessi ár / Life Patterns All These Years. Þar kannar Þórdís Alda, á sinn persónulega hátt, tengsl okkar við umhverfið, náttúruna. Hún talar við, og vinnur úr hráefnum sem eru henni nærri, bæði í samtíð og fortíð. Á sýningunni, bæði horfir hún fram á við og lítur um öxl, allt til bernsku. Þrátt fyrir endalausar endurtekningar, er endurtekningin tæki til að skrá, eins og band vafið í hring, eða ótal skór sem dansa kyrrir í loftinu. Hér sjáum við litríka fortíð í framtíð… falleg sýning í sýningarstjórn Oddu Júlíu Snorradóttur.









Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 18/02/2026 : GFX 100RF – 4.0/35mm



