Fortíð í Framtíð

Í Nýlistasafninu / The Living Art Museum, í Marshallhúsinu í Örfirisey, stendur nú yfir sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur, Lífsmynstur-öll þessi ár / Life Patterns All These Years. Þar kannar Þórdís Alda, á sinn persónulega hátt, tengsl okkar við umhverfið, náttúruna. Hún talar við, og vinnur úr hráefnum sem eru henni nærri, bæði í samtíð og fortíð. Á sýningunni, bæði horfir hún fram á við og lítur um öxl, allt til bernsku. Þrátt fyrir endalausar endurtekningar, er endurtekningin tæki til að skrá, eins og band vafið í hring, eða ótal skór sem dansa kyrrir í loftinu. Hér sjáum við litríka fortíð í framtíð… falleg sýning í sýningarstjórn Oddu Júlíu Snorradóttur.

Marshallhúsið, Örfirisey, við Reykjavíkurhöfn
Sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur
Sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur
Sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur
Sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur
Sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur
Sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur
Sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur
Sýning Þórdísar Öldu Sigurðardóttur

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 18/02/2026 : GFX 100RF – 4.0/35mm